Dolli kann á músabendil

Benntu á þann sem að þér þykir bestur

22.02.2007 09:09:23 / musabendill

,,Den stumme kvinde"

Hey hey...

Jæja... ég er núna í dönsku og er að gera eitthvert verkefni um bókina Trælkvoindens son. Mér finnst þetta bara vera fínt verkefni.

Alla vegna er allt gott að frétta af mér. Ég veit að það er langt síðan ég hef bloggað seinast en það er alveg góð og gild ástæða fyrir því. ..... ég á bara eftir að finna hana...

Ég og Agnes áttum 3 mánaða afmæli í gær.

Ég fór á Subway í gær með Sigga og Agnesi og átum okkur fulla af einhverjum góðum bát.

Ekki veit ég af hverju ég sagði frá þessu

Heyrumst...

P.s. ég á ennþá coke-ið síðan í gær:D

P.s. 2. ,,Honest expression of art, dance, and life. A powerful tool for communicating ideas, joy, and one's unique interpretation of rhythm and music in general. One of the worlds great story telling tools."

 ,,Rodney Holmes"


» 8 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 13:39:38 / musabendill

Jæja...

Aller...

Um helgina keyrði ég í fyrsta skiptið til Rvk einsamall, eða ég var ekki einsamall en í fyrsta skiptið sem ég keyri án þess að vera með ökukennara eða foreldri í bíl:) Ég verð að segja að það var svolítið stressandi fyrsta en svo á leiðinni heim gast ég gortað að sjálfum mér við sjálfan mig:) Þeir sem voru með mér í bíl voru Agnes, Marsibil og Bongó. Marsibil og Bongó voru að fara í bæinn út af einhverju sem mér var alveg sama um og kom mér ekkert við... Enda er ég ekkert verulega forvitinn krakki. Er Marsibil og Bongó voru farin úr bílnum héldum ég og mín, ,,trés bonne amie" í Kringluna og áttum góða stund saman. Svo fórum við heim um kvöldið og áttum góða kvöldstund saman. Og þannig er helgin búin að vera. Ég og Agnes erum búin að vera saman alla helgina og bara taka því rólega. Enginn asi eins og ég vil hafa það:)

Verð samt að bæta við að ég nenni alls ekki að laga til í herberginu mínu þegar ég kem heim seinna í dag:(

Heyrumst...

P.s. Nous aimons la France, Merci beaucoup

(Till Lindemann, Live in Nimes)


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 18:27:19 / musabendill

Kolbeinn túrbína

Hey hey...

Jæja... í dag fékk ég svo minn langþráða bíl:) Þetta er Nissan Almera og er auðvitað eins og er líkt mér, dökkrauður. Verulega svipaður og trommusettið mitt nema hvað daufari litur. Þetta tryllitæki fékk ég fyrir u.þ.b. 430.000 þúsund að mig minnir og er hann keyrðu 45 þúsund km.:) Ég hef ekkert á móti þessu tryllitæki. Ég er meira að segja strax byrjaður að finna gælunafn á hann. Hann kallast núna í mínum heim ,,Rauða túrbínan"

En að öðru. Agnes á afmæli á morgun:D

Og að allt öðru... ég biðst forláts fyrir þetta bloggleysi mitt.. ég einfaldlega var veikur og gat það ekki og þegar ég ætlaði að blogga virkaði béskotans netið ekki. Vitna hér með í Kolbein kaftein í ævintýrunum um Tinna,

,,Skrambans ekkisens eldflaugardrusla"

Heyrumst...

P.s. Á fóninum er Rammstein - Links 2 3 4 og að sjálfsögðu í Völkerball útgáfuni:)

» 11 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 17:00:42 / musabendill

Jæja... Langt

Leonardi di Caprio er með fellingar i andlitinu

» 7 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 13:50:22 / musabendill

Farinn!!!

Hey hey...

Jæja, um helgina er farið í þessar tímalegu kórbúðir og ég get ekki beðið eftir því. Svo mun Agnes verða hjá mér og helgina og ég á pantað kaffi hjá henni ömmu nákvæmlega klukkan hálf 4 á sunnudaginn. Það er bara góður matur hjá henni ömmu.

Heyrumst...

Mig langar í hrútspung

(Hugur minn)

» 5 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 09:15:30 / musabendill

Úrslit, ný skoðannakönnun og setning

Hey hey...



Þetta er flott. Bítlarnir halda sínu striki jafnvel þó þeir séu frá þeirra besta þessa daganna... það er orðið frekar langt síðan þeir gáfu út nýja plötu... örugglega fyrir 30 árum síðan eða eitthvað svoleiðis:S

En ég hélt að þú, sá snjalli í dúettinum, ætlaðir

að segja honum að klukkan er biluð

,,Púmba"


» 3 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill